Endurfundir, góðar minningar og sterk hefð settu svip sinn á þorrablót Vinnslustöðvarinnar í liðinni viku þegar fyrrverandi starfsmenn og makar þeirra komu saman. Vel var mætt og nutu nær sjötíu gestir þess að hittast á ný, rifja upp liðna tíð og eiga saman ánægjulega kvöldstund.

Sérstakan svip á blótið setti heimsókn í nýbyggingu fyrirtækisins þar sem gestum gafst kostur á að kynna sér starfsemina sem þar mun fara fram. Byggingin er um 5.600 fermetrar; á neðri hæð verður saltfiskvinnsla en á efri hæð innvigtun uppsjávarafla. Margir höfðu greinilega ánægju af að sjá með eigin augum hvernig starfsemi fyrirtækisins hefur þróast á undanförnum árum.

Kvöldið hófst á hefðbundnum þorramat á meðan myndasyrpa frá Kristjáni Óskarssyni - Stjána á Emmunni var sýnd. Sýning sem vakti bæði ánægju og hlýjar minningar meðal gesta.

Þór Vilhjálmsson og Hermann Kr. Jónsson bíða þess að komast í súrmatinn.
Þór Vilhjálmsson og Hermann Kr. Jónsson bíða þess að komast í súrmatinn.

Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi starfsmannastjóri Vinnslustöðvarinnar, hefur komið að skipulagningu blótsins frá upphafi. Hann segir hefðina dýrmæta og gleðilegt að sjá hversu vel fyrrverandi samstarfsfélagar mæta ár hvert, en mökum er einnig boðið með.

Blótið á sér nú tæplega áratugar langa sögu. Það var fyrst haldið í Akóges og hefur alla tíð notið góðrar aðsóknar. Að sögn Þórs fer fólk jafnvel að spyrjast fyrir um dagsetninguna strax upp úr jólum.

Sigríður Bragadóttir, Eyjólfur Guðjónsson, Auðbjörg Sigurþórsdóttir og Hjörleifur Friðriksson
Sigríður Bragadóttir, Eyjólfur Guðjónsson, Auðbjörg Sigurþórsdóttir og Hjörleifur Friðriksson

„Við höfum líka lagt áherslu á menningarleg innslög. Í fyrra var boðið upp á erindi og núna sýndi Stjáni á Emmunni flotta myndasyrpu. Það merkilega við þetta kvöld er að óáfengi bjórinn rennur út. Ég er hræddur um að það hefði lítið farið af honum fyrir svona 20–30 árum,“ segir Þór og brosir.

Að venju svignuðu borðin undan gómsætum þorramat og þótti kvöldið takast afar vel, þar sem stemningin var eins og best verður á kosið. Fleiri myndir frá blótinu má sjá hér að neðan.

Einsi kaldi sá um þorramatinn. Hér er hann með matreiðslukennrum sínum, Stellu Skaptadóttur og Unni Tómasdóttur.
Einsi kaldi sá um þorramatinn. Hér er hann með matreiðslukennrum sínum, Stellu Skaptadóttur og Unni Tómasdóttur.
Myndaalbúm · 25 myndir
Mynd 1 af 25
Mynd 2 af 25
Mynd 3 af 25
Mynd 4 af 25
Mynd 5 af 25
Mynd 6 af 25
Mynd 7 af 25
Mynd 8 af 25
Mynd 9 af 25
Mynd 10 af 25
Mynd 11 af 25
Mynd 12 af 25
Mynd 13 af 25
Mynd 14 af 25
Mynd 15 af 25
Mynd 16 af 25
Mynd 17 af 25
Mynd 18 af 25
Mynd 19 af 25
Mynd 20 af 25
Mynd 21 af 25
Mynd 22 af 25
Mynd 23 af 25
Mynd 24 af 25
Mynd 25 af 25
1 af 25