Vefur Vinnslustöðvarinnar hefur fengið uppfært útlit. Vefurinn heldur sínum svip en nú er auðveldara að rata um hann og finna upplýsingar. Efni vefsins hefur verið uppfært og ný tækni gerir hann hraðari en áður.
Stærsta breytingin er að Vinnslustöðin stýrir nú vefnum sjálf og getur breytt bæði efni hans og uppbyggingu án milligöngu þjónustuaðila.
Símaskrá með leit og skjöl á einum stað
Undir "Hafðu samband" er nú símaskrá með leit sem auðveldar gestum að finna tengiliði. Undir "Skjöl" má finna upplýsingar um stjórnarhætti félagsins ásamt stefnum og ársreikningum.
Allar eldri fréttir fylgdu með yfir á uppfærða vefinn og eru þar áfram aðgengilegar.



