Á fimmtudaginn sl. var hið árlega jólakaffi Vinnslustöðvarinnar haldið í Höllinni. Þar er starfsmönnum og fjölskyldum boðið til kaffisamsætis. Jólasveinarnir kíkja ávallt í heimsókn og gleðja börnin með nærveru sinni og gjöfum. Um áratuga hefð er að ræða sem er bæði skemmtileg og notaleg. Við sama tækifæri eru starfsmenn sem standa á tímamótum heiðraðir.

Notaleg stund í jólakaffi Vinnslustöðvarinnar

Þeir sem mættu og voru heiðraðir voru:

  • Ester Ólafsdóttir – starfslok vegna aldurs í Leo Seafood. 68 ára fiskvinnslukona í Leo Seafood frá því að fyrirtækið var stofnað.
  • Gísli Erlings – starfslok vegna aldurs í Hafnareyri. 71 árs smiður sem hefur starfað í 4,5 ár í Hafnareyri.
  • Orlando Soares – starfslok vegna aldurs í Fiskvinnslu VSV. 71 árs fiskvinnslumaður í VSV í rúm 6 ár. Kemur frá Portúgal og mætir manni alltaf með hlýju brosi og jákvæðni og er alls ekki tilbúinn að hætta að vinna.
  • Robert Szczepan Daszkiewic – 60 ára á árinu. Fiskvinnslumaður í VSV í tæp 11 ár. Kemur frá Póllandi og er lykilstarfsmaður á uppsjávarvertíðum í fiskvinnslunni.

Til stóð að heiðra fleiri vegna starfsloka og stórafmæla ef þeir hefðu átt tök á að mæta. Þar á meðal voru sjómenn sem áttu ekki heimangengt vegna vinnu sinnar.

„Við viljum þakka Kvenfélaginu Líkn fyrir veitingarnar og Hallarfólki fyrir að taka á móti okkur með jólalegri Höll. Jólasveinarnir voru það góðir að þeir verða sennilega að gera sér ferð af fjöllum á þennan árlega viðburð hér eftir.” segir Lilja Björg Arngrímsdóttir, yfirmaður starfsmannamála hjá VSV í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Myndasyrpu frá samverunni má sjá hér að neðan.

Myndaalbúm · 53 myndir
Mynd 1 af 53
Mynd 2 af 53
Mynd 3 af 53
Mynd 4 af 53
Mynd 5 af 53
Mynd 6 af 53
Mynd 7 af 53
Mynd 8 af 53
Mynd 9 af 53
Mynd 10 af 53
Mynd 11 af 53
Mynd 12 af 53
Mynd 13 af 53
Mynd 14 af 53
Mynd 15 af 53
Mynd 16 af 53
Mynd 17 af 53
Mynd 18 af 53
Mynd 19 af 53
Mynd 20 af 53
Mynd 21 af 53
Mynd 22 af 53
Mynd 23 af 53
Mynd 24 af 53
Mynd 25 af 53
Mynd 26 af 53
Mynd 27 af 53
Mynd 28 af 53
Mynd 29 af 53
Mynd 30 af 53
Mynd 31 af 53
Mynd 32 af 53
Mynd 33 af 53
Mynd 34 af 53
Mynd 35 af 53
Mynd 36 af 53
Mynd 37 af 53
Mynd 38 af 53
Mynd 39 af 53
Mynd 40 af 53
Mynd 41 af 53
Mynd 42 af 53
Mynd 43 af 53
Mynd 44 af 53
Mynd 45 af 53
Mynd 46 af 53
Mynd 47 af 53
Mynd 48 af 53
Mynd 49 af 53
Mynd 50 af 53
Mynd 51 af 53
Mynd 52 af 53
Mynd 53 af 53
1 af 53