​Það var brugðið út af vananum, eins og stundum er gert, í hádegishléi starfsfólks í fiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar í dag, föstudaginn 15. nóvember.

Boðið var upp á saltfiskrétti að portúgölskum hætti​. Slíkt var einnig gert ​síðastliðið vor og heppnaðist þá afar vel.​ Það tókst ekki síður vel til núna. ​Maturinn frábær og góð stemning.​

Um matargerðina sáu þær Carlota Teigas (Carla) og Susana Sequeira eins og í vor. Svo skemmtilega vill til að Carla á einmitt afmæli í dag og sendum við henni hamingjuóskir!

Veislukokkarnir Susana og Carla. Sú síðarnefnda á einmitt afmæli í dag.
Veislukokkarnir Susana og Carla. Sú síðarnefnda á einmitt afmæli í dag.

Að þessu sinni buðu þær upp á Punheta de Bacalhau, sem er marineraður saltfiskur og Bacalhau com natas, sem er ofnbakaður saltfiskur í rjómasósu.

Í eftirrétt var svo afar góð ostaterta sem einnig á uppruna í Portúgal.​ Við þökkum Cörlu og Susönu fyrir enn og aftur​!

Áhugasömum er bent á að leita á netinu að nöfnum réttanna til að fá uppskriftir og leiðbeiningar um matreiðslu þeirra.

Myndaalbúm · 10 myndir
Mynd 1 af 10
Mynd 2 af 10
Mynd 3 af 10
Mynd 4 af 10
Mynd 5 af 10
Mynd 6 af 10
Mynd 7 af 10
Mynd 8 af 10
Mynd 9 af 10
Mynd 10 af 10
1 af 10