Undanfarnar vikur hafa stjórn og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar unnið að endurskoðun á rekstri fyrirtækisins í leit að hagræðingu. Er það óumflýjanleg aðgerð vegna aukinnar skattheimtu ríkisins sem er áætluð 850 milljónir á ári fyrir samstæðu Vinnslustöðvarinnar þegar hún verður að fullu komin til framkvæmda. Eftir hækkunina eru veiðigjöld Vinnslustöðvarinnar áætluð 1.450 milljónir króna á ári.

Fyrsta skrefið var að stöðva allar fyrirhugaðar framkvæmdir og kaup á nýjum skipum. Það eitt og sér dugir ekki til og því þarf að grípa til fleiri aðgerða. Stjórn Vinnslustöðvarinnar hefur því ákveðið að loka fiskvinnslunni Leo Seafood. Það er erfið en nauðsynleg ákvörðun. Við breytingarnar þarf félagið að grípa til uppsagna 50 starfsmanna.

Fyrir utan hækkun veiðigjalda hafa gríðarlegar hækkanir á launakostnaði og sterk króna gert rekstur Leo Seafood erfiðan. Í tvö ár hefur verið unnið að hagræðingu sem hefur borið árangur en Leo Seafood er ennþá í taprekstri. Í kjölfar lokunar á Leo Seafood mun hluti þess fiskjar sem unninn var þar verða unninn í saltfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar en jafnframt verður sala á markaði aukin.

Áhrifin verða víðtæk og má benda á að launakostnaður Leo Seafood nam á síðasta ári 550 milljónum króna og verða ríkið og Vestmannaeyjabær af 122 milljónum við þessa aðgerð í formi útsvars og skatta.

Í þessu samhengi er rétt að rifja upp orð Sigurgeirs B. Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, sem hann lét falla þegar tilkynnt var um kaup félagsins á Ós og Leo Seafood.

„Við munum gera út Þórunni Sveinsdóttur áfram með áhöfninni sem þar er og engar breytingar eru heldur fyrirsjáanlegar í Leo Seafood.”