Norsk-íslenska síldarvertíðin á lokasprettinum
Um 11.000 tonnum af norsk-íslenskri síld hefur verið landað hjá Vinnslustöðinni og vertíðarlok nálgast. Í næstu viku verður farið að huga að veiðum á íslenskri sumargotssíld.
Breki sigldi 3.700 sjómílur í haustralli Hafró
Breki VE er kominn heim eftir rúmlega þriggja vikna haustrall Hafró. Teknar voru 179 rannsóknastöðvar og sigldar 3.700 sjómílur við krefjandi veðuraðstæður.
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu
Bleiki dagurinn setti svip á morgunkaffið hjá Vinnslustöðinni í morgun, miðvikudaginn 21. október. Boðið var upp á kaffi og bakkelsi að venju á þessum degi og flestar terturnar voru að sjálfsögðu bleikar.
Frá Vigo til Kína
Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi Vinnslustöðvarinnar, ræðir framleiðsluna, sýninguna í Vigo og verkefnin fram undan, meðal annars sýningu í Kína.
Grupeixe og ESBAL á Conxemar – sýningunni í Vigo á Spáni
Sjávarútvegssýningin Conxemar í Vigo á Spáni fór fram nú vikunni og tók Vinnslustöðin þátt í henni í gegnum fyrirtæki sín í Portúgal, Grupeixe og ESBAL.
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu á sólarhring
Síldarvinnslan hjá Vinnslustöðinni hefur gengið vel í haust þótt veður hafi stundum truflað veiðarnar. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og koma hátt í 50 manns að vinnslunni á sólarhring.
Atvinnuvegaráðherra heimsótti Grupeixe í Portúgal og kynnti sér einstaka stöðu saltfisks á Portúgalsmarkaði
Síðastliðinn föstudag komu atvinnuvegaráðherra og starfsfólk atvinnuvegaráðuneytisins í heimsókn til Grupeixe í Portúgal.
Síldarveiðar í fullum gangi
Huginn VE kom heim með síldarfarm úr þriðja túrnum. Um 5.500 tonn eru eftir af norsk-íslenska síldarkvóta Vinnslustöðvarinnar og stefnt að því að ljúka veiðunum um miðjan október.
Breki lauk túrnum með mokveiði
Magnús Ríkarðsson skipstjóri segir frá mokveiði í lok síðustu veiðiferðar Breka VE og ræðir það sem fram undan er hjá skipinu.
Yfir 7.000 tonn unnin til söltunar
Yfir 7.000 tonn af hráefni hafa verið unnin til söltunar hjá Vinnslustöðinni það sem af er ári – meira en á öllu síðasta ári. Áfanganum er fagnað með tertum með kaffinu.
Í mörg horn að líta um borð í Kap
Annríki var um borð í Kap VE þegar Halldór B. leit við og ræddi við Kristgeir Arnar Ólafsson skipstjóra. Áhöfnin var þá að undirbúa næstu veiðiferð.
Ný uppsjávarvinnsla tekin í notkun í Kima
Um 6.000 fermetra sérhæft vinnsluhús :: Ný hreinsistöð og innvigtunarbúnaður meðal stærstu verkþátta.