Jónína Einarsdóttir, sem starfaði um árabil í Fiskiðjunni og síðar Vinnslustöðinni, er 100 ára í dag, föstudaginn 13. nóvember. Af því tilefni heimsótti Lilja Björg Arngrímsdóttir, rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar, Jónínu á Hraunbúðir og færði henni blóm og afmæliskveðjur frá fyrirtækinu.
Byrjaði í mötuneyti Fiskiðjunnar
Jónína ólst upp í Vestmannaeyjum og vann meðal annars í Hraðinu, netagerðinni Ingólfi og þvottahúsinu hjá Þuru. Í Heimaeyjargosinu 1973 flutti hún til Keflavíkur, þar sem hún vann í frystihúsinu Stóru milljón ásamt dóttur sinni, Sigríði Erlu.
Eftir gos hringdi Villa, kunningjakona Jónínu, og bauð henni vinnu í mötuneyti Fiskiðjunnar. Jónína þáði boðið og flutti heim til Eyja. Hún færði sig síðar úr mötuneytinu yfir í fiskvinnsluna. Þar tíðkaðist að kalla konurnar eftir númeri borðsins sem þær unnu við. Við borð númer tíu vann Jónína og var því kölluð Jónína á tíu í vinnunni.
Jónína starfaði áfram hjá Vinnslustöðinni eftir sameiningu fyrirtækjanna og vann þar til hún varð 67 ára.
Vinnslustöðin óskar Jónínu innilega til hamingju með hundrað ára afmælið.




