Dagana 26-28 apríl síðastliðinn var haldin sjávarútvegssýning í Brussel. Vinnslustöðin og About Fish héldu úti bás á sýningunni eins og undanfarin ár. Viðbrögðin voru mjög góð og er þetta mjög góður vettvangur til að hitta núverandi viðskiptavini ásamt því að kynnast nýjum. Þarna kemur saman starfsfólk okkar frá öllum söluskrifstofum About Fish sem staðsettar eru á Íslandi, Þýskalandi, Frakklandi, Hollandi, Portúgal og Rússlandi. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar og þetta árið voru í kringum 1.600 sýnendur frá 75 löndum. Árið 2015 sóttu 26.600 gestir sýninguna frá yfir 140 löndum.“
Vinnslustöðin á Brussel 2016
Dagana 26-28 apríl síðastliðinn var haldin sjávarútvegssýning í Brussel. Vinnslustöðin og About Fish héldu úti bás á sýningunni eins og undanfarin ár. Viðbrögðin voru mjög góð og er þetta mjög góður v
Fleiri fréttir
Fréttayfirlit →
Hraðari vefur og auðveldara að rata
Vefur Vinnslustöðvarinnar hefur fengið uppfært útlit og er hraðari og auðveldari í notkun. Vinnslustöðin sér nú sjálf um uppbyggingu og efni vefsins.

Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Þótt nýr sæstrengur sé kominn til Vestmannaeyja gengur fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar fyrir olíu. Ástæðan er raforkuverðið.

Viðskiptasambönd ræktuð í Qingdao
Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar hittu kaupendur og kynntu afurðir fyrirtækisins á sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo í Qingdao í Kína í vikunni.
