Fyrsta verk Ingólfs Ingvarssonar í eldhúsinu á Breka fyrir veiðiferð er að fara yfir kostinn og ganga úr skugga um að allt sé með. „Það er vont að vanta þegar maður er kominn út á hafið,“ segir hann. Halldór B. Halldórsson ræddi við hann í síðustu viku.

Fiskur er á matseðlinum fjórum sinnum í viku og þegar Ingólfur er spurður hvað sé vinsælast nefnir hann lambafille og nautalundir. Á afmælisdögum fær áhöfnin stundum að koma með uppástungur að matnum. Þá er gert aðeins meira úr máltíðinni og fyrir kemur að afmælissöngurinn er sunginn.

Ingólfur er fljótur að svara þegar Halldór spyr hvern úr áhöfninni hann myndi treysta fyrir eldamennskunni í viku. Hermann Þorvaldsson fengi starfið. Þegar talið berst að því hvers hann sakni helst úr eldhúsinu þegar hann er kominn í land stendur svarið heldur ekki á sér. Það er ofninn.

Í lok viðtalsins rifjar Ingólfur upp fyrstu árin í kokkstarfinu þegar hann hringdi oft í mömmu sína til að fá ráð við eldamennskuna. Einu sinni varð sósan hjá honum svo þykk að skipsfélagarnir gátu sett diskinn á hlið án þess að hún rynni af honum.

Horfa á viðtalið við Ingólf Ingvarsson um borð í Breka VEOpna á YouTube ↗