Mikil sorg ríkir í íslensku samfélagi eftir hörmulegt sjóslys í gær þar sem þrír skipverjar létust.

Í dag er íslenska fánanum flaggað í hálfa stöng við Vinnslustöðina til minningar um þá sem létust.

Við vottum fjölskyldum, vinum og samstarfsfólki þeirra okkar dýpstu samúð. Hugur okkar er hjá öllum sem eiga um sárt að binda vegna slyssins.